Setup myndband frá Rotarex (1:54, ensk talsetning).
Kælt kolsýrt vatn beint af borðinu
Setup myndband frá Rotarex (1:54, ensk talsetning).
Borðtæki með innbyggðri kælingu. Þú þarft að bæta við CO2 hylki (ekki innifalið).
| Magn | Vörunúmer | Lýsing |
|---|---|---|
| 1× | 1004939 |
Fizzy eining — borðtæki, 230V/50Hz |
| 1× | 1152377 |
CO2 slanga 6 mm blá (~2 m) |
| 1× | 1004497 |
Vatnslanga 8 mm blá (~2 m) |
| 1× |
1002321 eða1004702
|
CO2 þrýstilækkari (verksmiðjustilltur) 1002321 fyrir Kolsýruhylki 425 g @ 5,5 bar · 1004702 fyrir Stórt Kolsýruhylki 4 kg @ 6,3 bar. Sjá yfirlit |
| 1× | 1001624 |
AquaStop + 9V alkaline rafhlaða |
| 1× | — | Agnarsía AquaStop |
| 1× | — | T-tengi |
| 1× | — | Minnkun |
Settu Fizzy á borðplötu nálægt vask og innstungu.
Tengdu Fizzy við 230V innstungu og kveiktu á rofanum aftan á tækinu.
Áður en Fizzy er ræst í fyrsta sinn þurfa 2 klst. að líða frá uppsetningu svo tækið aðlagist herbergishita. Eftir að kveikt er á rofanum tekur um 20 mínútur að ná réttu hitastigi.
Þrír takkar, þrjár tegundir
Haltu glasinu nálægt úttakinu til að forðast skvett af kolsýrðu vatni.
Skiptu um CO2 hylki — sama ferli og skref 3.
Sjónskoðun: athugaðu tæki, slöngur og CO2 hylki fyrir skemmdum, sliti og óhreinindum. Hreinsaðu agnarsíu AquaStop í hreinu vatni.
Þurrkaðu tækið með þurrum klút. Ekki sprauta vatni á tækið og ekki nota sterk hreinsiefni — matarsódi með rökum klút virkar vel.
AquaStop lokar vatni sjálfkrafa og pípir. Lokaðu kaldavatni undir vask og hafðu samband við Sódavatn.
Athugaðu hvort vatn sé opið undir vask. Athugaðu hvort slangan sé rétt í push-fit tengingunni.
Kolsýruhylkið er líklega tómt (kolsýran hverfur oft eftir 2–3 glös). Skiptu um hylki (sjá skref 3). Ef þrýstilækkarinn er stillanlegur (4 kg lækkari 1004702) skaltu stilla á 6,3 bar.
CO2 þrýstingur er of hár eða vatnsflæði of mikið. Lækkaðu CO2 þrýsting í markgildi (5,5–6,3 bar fyrir Fizzy) og stilltu flæði að 2 l/mín með skrúfunni aftan á tækinu.
Bíddu 20 mínútur eftir kveikju. Athugaðu hitastillingu aftan á tækinu og að loftræsting (3 cm frá veggjum) sé í lagi. Ef enn vandamál, hafðu samband.
Rafhlaðan er tóm — skiptu um 9V alkaline rafhlöðu (ekki endurhlaðanlega). Ef AquaStop lokaði vegna leka: þurrkaðu skynjarann, lagaðu lekan, og haltu check/reset inni í 4 sek. til að opna.
Herðu tengingar. Athugaðu hvort slöngur séu rétt í push-fit tengingum (ýttu inn þar til smellur heyrist).
Þú getur valið um tvær stærðir af Kolsýruhylki frá Sódavatni. Við sendum þrýstilækkarann sem passar — báðir eru push-fit fyrir 6 mm slöngu og verksmiðjustilltir.
~60 L af sódavatni
5,5 bar verksmiðjustilltur — skrúfa réttsælis á hylkið.
~540 L af sódavatni
6,3 bar stillanlegur með mælir — skrúfa rangsælis á hylkið.
Athugið: 425 g hylki er skrúfað réttsælis á (öfugt við venjulega skrúfu) og 4 kg hylki rangsælis. Þetta eru aðskildir öryggisstaðlar fyrir gashylki — gættu þess að nota réttan lækkara fyrir hylkið.
Ekki rugla saman við Slim þrýstilækkara (1003312 / 1003311 / 1159843, 8 bar). Slim þarf hærri þrýsting; Fizzy er stillt á ~6 bar.
Rotarex BubbleBox Fizzy handbók (EN, PDF) — inniheldur tæknilegar upplýsingar, varahluti og bilanaleit.