Fyrsta sendingin

Taktu frá tæki úr fyrstu sendingunni

Tækin eru framleidd fyrir okkur og afhending tekur um 5 mánuði frá pöntun. Með 25.000 kr. staðfestingargjaldi tryggir þú þér tæki úr fyrstu sendingunni. Gjaldið dregst frá verðinu og er endurgreitt að fullu ef þú hættir við fyrir afhendingu.

Veldu tæki

Upplýsingar um þig

Verð tækisins–
Staðfestingargjald í dag25.000 kr.
Eftirstöðvar við afhendingu–

Verð með vsk. Uppsetning fer eftir aðstæðum og við förum yfir hana með þér áður en tækið kemur.

Þú greiðir á öruggri greiðslusíðu Kling.

Hvenær fæ ég tækið?

Tækin eru framleidd fyrir okkur og afhending tekur um 5 mánuði frá pöntun. Við staðfestum dagsetninguna þegar sendingin fer af stað og höfum þá samband til að bóka uppsetningu.

Get ég hætt við?

Já. Staðfestingargjaldið er endurgreitt að fullu ef þú hættir við fyrir afhendingu. Þá nægir að senda okkur póst á [email protected].

Hvað með uppsetningu?

Kranarnir tengjast köldu vatni og rafmagni og kælirinn fer inn í skápinn undir vaskinum. Uppsetning fer eftir aðstæðum og við förum yfir hana með þér áður en tækið kemur.

Get ég leigt tæki?

Í fyrstu sendingunni bjóðum við aðeins upp á kaup. Leiga kemur síðar og þú getur sent okkur fyrirspurn um hana.