Sódavatn án fyrirhafnar
kolsýruáfylling í áskrift
Þú sérð um vatnið, við sjáum um sódann
Þetta er ekki flókið - leyfðu okkur að einfalda þér lífið
Einföldum lífið
Ef þú átt nú þegar kolsýrutæki kannast þú við það að vera kolsýrulaus. Tækið var æðislegt til að byrja með en situr núna inni í eldhúsi og starir á þig innantómt og gaslaust. Einhvernveginn gleymir maður alltaf að taka með sér gamla hylkið og sölustaðirnir eru úr alfaraleið.
Besta vatnið
Á Íslandi erum við með besta vatn í heimi. Það kemur beint úr krananum heima. Það er óþarfi að burðast með það heim úr matvöruverslunum og fara síðan með tómar umbúðir í endurvinnsluna.
Heimsending er innifalin
Svo að þetta sé nú raunverulega engin fyrirhöfn þá er heimsending innifalin í verðinu þegar þú skráir þig í áskrift. Þú getur því sleppt því að sitja í umferð og notið þess að bíða eftir áfyllingunni í ró og næði.
Íslensk hringrás áfyllinga
Sódavatn er íslenskt fyrirtæki sem fyllir á sódavatnshylki í póstnúmeri 105 í Reykjavík. Með því að fylla á hylkin sjálf komumst við hjá því að senda hylkin í gámum erlendis og fá þau til baka áfyllt eins og samkeppnisaðilar okkar.
Verð á áfyllingu
Heimsending innifalin
Þú stjórnar tíðni áfyllinga
Engin fyrirhöfn